Totus
Aðgangsstýring

Snjalllásar

Rafdrifnir hurðarhúnar og snjallsívalningar frá iTEC — opnun með korti, PIN, appi, fingrafari eða dropa fyrir heimili, hótel, Airbnb, skrifstofur og fjölbýli.

Senda verkbeiðni
Snjalllásar

iTEC snjalllásar — öruggur og sveigjanlegur aðgangur

Totus býður nú upp á heildarlausnir frá iTEC í Portúgal – leiðandi framleiðanda á sviði rafdrifinna læsinga, aðgangsstýringar og hugbúnaðarlausna fyrir hótel, fyrirtæki, skrifstofur, fjölbýlishús og Airbnb. iTEC sameinar öryggi, þægindi og nútímalega hönnun með lausnum sem gera notendum kleift að stjórna aðgangi á einfaldan og öruggan hátt.

Rafdrifnir hurðarhúnar og snjallsívalningar frá iTEC bjóða upp á fjölbreyttar opnunaraðferðir eftir gerðum: PIN-kóða, RFID kort, Bluetooth, farsímaforrit og fingrafaralesara. Ókeypis iTEC OnAccess forrit fylgir og með iTEC Gateway má opna hurðina, senda tímabundna kóða og fylgjast með aðgangssögu hvar sem er í heiminum.

Helstu kostir

  • Opnun með RFID korti eða lykilmerki
  • PIN-kóði
  • Bluetooth og farsímaforrit
  • Fingrafaralesari á völdum gerðum
  • Aðgangsskráning og rekjanleiki
  • Hentar fyrir hótel, Airbnb, skrifstofur og fjölbýli

Samþætting við iTEC hugbúnað

Lásarnir tengjast iTEC OnAccess, OnAccess PRO og Hybrid kerfunum sem gera stjórnendum kleift að stofna og eyða notendum, veita tímabundnar aðgangsheimildir, senda stafræna lykla, fylgjast með aðgangssögu og stjórna mörgum hurðum og byggingum úr einu viðmóti.

Vörur í boði

Birgjar okkar:
RogeriTecFAAC