Gluggamótorar
Mótorar fyrir opnanleg fög, reyklosun og loftræstingu.
Senda verkbeiðni
Gluggamótorar og reyklosun frá Nekos
Totus býður upp á rafdrifna gluggamótora og reyklosunarlausnir frá Nekos á Ítalíu — leiðandi framleiðanda á sviði sjálfvirkni fyrir opnanleg fög. Lausnirnar henta fyrir daglega náttúrulega loftræstingu jafnt sem reyklosun (RWA/SHEV) í atvinnu- og íbúðarhúsnæði.
Nekos framleiðir bæði keðjumótora og spindilmótora fyrir fjölbreyttar gluggagerðir, ásamt stýringum og aukabúnaði sem gera kerfin snjöll og örugg.
Nekos er þekkt fyrir
- 100% ítalska hönnun og framleiðslu
- Áreiðanlega og hljóðláta mótora
- Náttúrulega loftræstingu og reyklosun (RWA/SHEV)
- Samþættingu við snjallheimili og byggingastjórnkerfi (BMS/KNX)
Stýringar fyrir reyklosun
SHEV-3 og SHEV-6 stýristöðvar (3A og 6A) stjórna reyklosunarmótorunum samkvæmt EN 12101 (hluta 9 og 10). Þær eru með aðalafli og allt að 72 klst varaafli, neyðarrofa og forritanlegum loftræstistillingum.
Aukabúnaður
- Veggrofar og fjarstýringar
- Regn- og vindskynjarar
- Tímastýringar
- Samþætting við BMS og KNX
Vörur í boði
Sendu okkur línu
Við veitum ráðgjöf, hönnum lausnina og sjáum um uppsetningu og þjónustu. Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.


Simon-protec


