Fasttel
Entry Video Kit
Tilbúið Plug & Play mynddyrasímakerfi — FT600 útistöð með HD myndavél, val um 7" FT600W eða 10" Android Commander innistöð, PoE switch og fjögur app-leyfi. Fáanlegt í mörgum útfærslum, með eða án talnaborðs.
Video Kit lausnirnar henta þegar óskað er eftir heildstæðu mynddyrasímakerfi sem er einfalt að velja og setja upp. Fasttel býður fjölmargar samsetningar með mismunandi stærðum útistöðva, með eða án talnaborðs og með 7" FT600W eða 10" Commander innistöð. Einnig eru Basic-útfærslur án hefðbundins inniskjás þar sem snjallsímaforritið gegnir stærra hlutverki.
- Plug & Play kerfi — einfalt að velja og setja upp
- FT600 útistöð úr svartanodíseruðu áli og hertu gleri
- HD litamyndavél
- Með eða án talnaborðs
- Val um 7" FT600W eða 10" Android Commander innistöð
- PoE switch í viðeigandi settum
- Fjögur app-leyfi í algengum kit-útfærslum
- Stækkanlegt með fleiri úti- og innistöðvum
Útfærslur
| FT600VK | 1 takki, HD myndavél, 7" skjár, PoE switch, 4 app-leyfi |
| FT600VKK | 1 takki + talnaborð, HD myndavél, 7" skjár, PoE switch, 4 app-leyfi |
| FT600VK-10 | 1 takki, HD myndavél, 10" Android skjár, PoE switch, 4 app-leyfi |
| FT600VKK-10 | 1 takki + talnaborð, HD myndavél, 10" Android skjár, PoE switch, 4 app-leyfi |
| Basic útfærslur | Fáanlegar án inniskjás — appið gegnir stærra hlutverki |
| Stærðir | Litlar, miðlungs og stærri útistöðvar eftir útfærslu |




